15.8.2011 | 09:23
Afleiðingar GJALDTÖKU
Góðan daginn,
ef að það kostaði ekkert að fleygja rusli myndi staðan vera allt önnur.
Þá myndu ekki safnast upp svona haugar af drasli, sem eru fleyri en fólk grunar.
Kostaðurinn við að hreinsa upp alla hauga er örugglega mun meiri en fæst fyrir sorpeiðingu.
Yfirgengilegur sóðaskapur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er miklu eldra vandamál en svo að hægt sé að kenna gjaldtöku um. Því miður var þetta siður í marga áratugi að fólk henti rusli hvar sem það gat komið því fyrir og þótti ekki tiltökumál. Því miður höfum við Íslendingar oft verið aftarlega á merinni í ýmsum málum, meðal annars þessum.
En hvað gjaldtöku varðar þá eykur hún vissulega líkur á því að fólk finni sér holur til að henda rusli í.
Guðmundur (IP-tala skráð) 15.8.2011 kl. 10:53
Hvaða gjaldtöku? ég fer vikulega með allskonar drasl í Sorpu og mæti engu nema góðu viðmóti starfsmanna.
Eyjólfur Jónsson, 15.8.2011 kl. 12:25
Það KOSTAR ALLTAF að farga rusli á ábyrgan hátt. Bara spurning hvernig við greiðum það, þ.e. hversu mikið við niðurgreiðum það með sköttum okkar. Eins og Eyjólfur bendir á borgum við ekki neitt til Sorpu fyrir að koma með hóflegt magn af úrgangi og drasli frá heimilum.
Skeggi Skaftason, 15.8.2011 kl. 12:52
Þarna er fullt af brotajárni sem mætti selja, svo það er nú tæplega afsökun að kostnaðurinn sé mikill við að farga rusli. Hvert heimili má farga 1m^3 að mig minnir, á dag, svo það ætti nú ekki að vera mikið mál að henda þessu. Af bílhræjunum að dæma er þetta rusl þó töluvert gamalt. Á þetta var minnst fyrir nokkrum árum í fjölmiðlum, en yfirvöld sýndu því engan áhuga að gera neitt í þessu.
Samúel Úlfur Þór, 15.8.2011 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.